Ég er búinn að spyrjast fyrir um hvort Collectors útgáfan komi út 16. nóv. en ég fæ bara loðin svör. Veit einhver þetta fyrir víst. Einhver sagði að það kæmi ekki fyrr en í des. Ef tölvubúðirnar eru svona slappar að koma ekki með Collectors útgáfuna strax, þá tapa þeir slatta af bissnes. allir alvöru nördar ætla að kaupa þann pakka. Ég flyt hann þá bara inn sjálfur og tölvubúðirnar hérna fá ekki peninginn minn. Mér finnst samt ansi slappt að merkilegasti leikur aldarinnar er að koma út og þeir sem vinna í tölvubúðunum eru bara úti að aka þegar maður reynir að fá upplýsingar um þetta. “Collectors Edition, hvað er það?”

Venlig hilsen,
Maurinn