Um leið og við Oldies menn þökkum frábærar viðtökur við Oldies Gondudeild (oldies.is:27030) viljum við bara minna á nokkra hluti.

Þetta er góður server sem á eftir að vera eftirsóknarvert að spila á þannig að hafið eftirfarandi í huga.

Það er alltaf slatti af Oldies mönnum að spila á Gongudeild,allir eru þeir með r-con og eru duglegir við að halda servernum hreinum.

Það sem við köllum að halda servernum hreinum er að við verðum duglegir að kikka út mönnum sem stunda almennann og leiðinlegann þursaskap (tk,teamflass,gren og önnur almenn leiðindi)

Einnig gætum við þess að ekki séu menn í specc ef server er fullur,ef þér er kikkað af Gongudeild fyrir að vera AFK nokkur round eða í specc að þá er það ekkert personulegt heldur eingöngu gert til þess að losa slot og halda servernum fullum,um að gera að koma bara inn aftur.

Það er ekki um neitt r-con abuse að ræða af okkar hálfu,ekkert reserved slots fyrir Oldies menn eða neitt slíkt og við kikkum EKKI til þess að losa slot fyrir Oldies menn (nóg er maður búinn að þurfa að bíða til að sanna það)

Þetta er okkar server,fyrir ykkur.Við sjáum um að halda honum góðum og “hreinum” og á móti biðjum við um að þið mætið með því hugarfari að skemmta ykkur vel og hagið ykkur vel.

Og endilega setjið upp nikkin ykkar á Gongudeild,ekki alt-nikka.

Velkominn á Gondudeild GL & HF

Kv
Willkill