Þá er það komið á hreint !

[.evil.]Razter á afmæli í dag 6. okt.

Þessi ungi piltur byrjaði sinn cs feril undir hinu þekkta nicki [.V.I.P.]RaStA og hefur svo seinna meir unnið sér inn orð fyrir hæfileika í counter-strike og mikinn kjaft !

Hann hefur spilað með mörgun liðum á skjálfta og í fleiri mótum.

Honum hefur oft gengið vel á skjálfta og er þá helst að minnast góðs gengi hans með Senior | og [.evil.] ^ LoRdZ! þar sem hann lenti í top10.
Svo er hann einnig núverandi Lan-Seturs OPEN meistari með hinu æviþekkta og góða org clani, sem samanstóð af meiri snillingum en hafa sést í counter-strike heiminum.

Svo ber að geta að hann er 17 ára og þess vegna að fá bílpróf og mundi ég bara halda mig inni næstu dagana.

Vill ég því nota þetta tækifæri til að óska honum til hamingju með afmælið sitt og skála hérna uppúr þessum góða Brazza appelsínusafa sem ég hef hér mer við hönd og komið svo með þrefalt húrra!

Húrra ! Húrra ! Húrra !