Það er eitt vandamál sem hrjáir þennan skemmtilega leik, það eru þeir sem ákveða að verða að fíflum sem allir hata og byrja að drepa sína TeamMates. Þetta eru mestu fífl í CS sem ég veit um!! OK, það kemur fyrir að menn skjóta TeamMate en þetta er leiðinlegt. Þetta á ekki að gerast. Mér finnst að Admininn að servernum ætti að taka upp smá reglu, og það er að þeir sem gera þetta einn leik, verða BANNAÐIR af servernum, forever punktur. Enginn sjens, ekkert bull. Hann hlýtur að geta séð hvaða ip tölur voru í gangi á servernum hverju sinni, eða hvað?
Ok það sem ég meina að banna manninn, er einfalt, þó það sé (bara dæmi) [Hate]StoneM (ekki að segja að hann stundi TK) þá verði hann umsvifalaust bannaður. Admininn má alls ekki taka afstöðu um að þessi sé með honum í klani, og er vinur hans.
TeamKill er sá hluti leikjarins sem á ekki að gerast, og á ekki að geta gerst!! Kick virkar ekkert, ban virkar. Ef þú veist af því að þú getir verið bannaður af servernum fyrir að stunda TeamKills, þá er það þitt mál!!
Nú er þitt að segja, þar sem ég nenni ekki að rugla meira.

ViceRoy