Gott grín aðeins of lengi.

Ég var að spila um daginn og var tengdur Simnet BC. Ég fór að leika mér þegar Metallica fór að hljóma af krafti í BC. Ég og Fúsi (Rocco) tókum eftir því að sá eini sem kom til greina var velþekktur spilari sem ég ætla ekki að nefna á nafn. Ekki spyrja mig að því.

Málið var að þetta var alveg sæmilega fyndið. Það er ekki málið. Þetta hætti bara að vera fyndið þegar við sem vorum inni á BC þurftum að fara út úr CS, út af BC servernum og að fara að hringjast á til að koma öðrum BC server upp og fara síðan í það að finna annan CS server og koma okkur inn. Nokkura mínútna process.

Þetta fór því út því að vera skoplegt í það að vera tillitslaust og frekt.

Ég vildi aðeins nefna þetta atriði vegna þess að ég held að menn viti stundum ekki hvar eða hvenær á að hætta í gríninu. Þetta er ennfremur ekki í fyrsta sinn sem ég verð var við svona grin í BC'inu.