Við hér í GGRN eru sármóðgaðir af samanteknum ráðum Nebbanna og Drake að hafa af okkur 6.sætið OKKAR í ICSN deildinni. NeF klanið sem þekkt er fyrir að hafa varla unnið leiki í deildinni nappaði sætinu okkar með einhverskonar samkomulagi við manndómsleysurnar í Drake. Í umferðinni á undan skutu Drake piltar fámennt og óreynt lið GGRN í tætlur á ókunnu mappi, en komu okkur jafnframt skemmtilega á óvart með að mörgu leiti skemmtilegri spilamennsku. Við sáum strax að nebbarnir ættu engan sjéns í þessa Drake pilta….en viti menn svo mæta ekki þessar lufsur… og nebbarnir hirða enn einn sigurinn á þess svo mikið sem ýta við mús. Fuss !!!

Fidel - Nöldrari