Ég er dyggur aðdáandi cs og hef verið að spila þennan leik i rúmt ár. Það sem hefur verið svo skemmtilegt svona hobbý verður allt í einu algjör martröð. Ég hef verið mikið að spila á pyttinum sem er staðsettur í fæðingarbæ mínum sem ég varð til í fyrir 25 árum síðan. Þar er admin sem skýrir sig í höfuðið á eitri nokkru og er greinilega ekki með aldur til að vera með þau forréttindi. Þessi einstaklingur lætur mér líða eins og ég sé aftur kominn í gaggó. Hann hentir manni út þegar maður er einn af tveimur eftir í Counter Terrorist liðinu og einn er eftir í terrum. Þegar hann er sjálfur í Terrorist. Ástæðan sem hann gaf jú forgangsröð. Jæja.. hvað getur maður gert? Ekkert því maður er bara plebbi sem hefur gaman af tölvuleikjum. Nema kannski að segja ykkur frá þessu.