Ok, ég er hérna að reyna að koma cs í lag hjá mér. Þannig er mál með vexti að ég var búinn að skrá hjá mér account á Steam en hann virkaði ekki og ég tók það út (ásamt Half-life) og gleymdi óvart accountinum mínum. En núna ætlaði ég að fara að reyna að laga þetta en þá kom að cd-keyinn min væri skráður og gæti því ekki farið í cs. Þá fór ég í retrieve lost account og gaf upp cd-keyinn. Þeir sögðust ætla að senda hann á e-mail þess sem á accountinn. En síðan er ég búinn að fara í gegnum öll mín e-mail án þess að sjá tangur né tetur af honum. Vitið þið hvað ég get gert?