Ég var að skoða nýja síðu með upplýsingum um HL2 og þar voru tvö skjáskot af nýja Hammer (er undir HL2 korknum: HL2 Fallout). Eitt af því sem ég tók eftir var það nú er komið sértakt sívalningsform sem mig hefur fundist vanta. Síðan fannst mér hreint fáranlegt hvað þeir geta leift sér að hafa mikla smámuni í borðunum, og bendi ég þá á í gamaldaga var bara gerður kassi með hadriðsmynd en núna byggja þeir bara pípurnar í handriðinu. Þetta kveikti aftur í mér áhugan á að búa til borð þar sem mig fannst alltaf frekar leiðinlegt að geta ekki gert mikið af smámunum. Ég næstum því spenntari með að fá að komast í nýja Hammer og að prófa leikinn sjálfan.

Að gefnu tilefni vill ég koma af stað smá umræðu um nýja Hammer og kannski einhver hafi meiri og betri upplýsingar um hann.