Jæja, ég ákvað bara að taka mig saman í andlitinu og smerla hérna inn smá spá fyrst enginn annar er búinn að því.. eða ég allavega hef ekkert tekið eftir neinu í svipuðum dúr.

Mín spá er svohljóðandi:

#1 Drake | - Samheldið lið sem hefur staðið sig mjög vel í öllu sem þeir hafa tekið sér fyrir hendur, ekki hægt annað en að búast við sigri af þessum gaurum.

#2 ice - Það verða einhverjir örðugleikar hjá ice.cs en þeir eiga allavega eftir að ná 2. sætinu, fínt lið og skemmtilegir spilarar.

#3 st2k - Þeir hafa mætt nokkrum sinnum á skjálfta og alltaf sýnt og sannað það að þeir eiga vel heima í top 3, eða reyndar ekki sem “st2k” heldur allavega 3 úr liðinu þ.e BulletB, traxx og Palli.. býst við miklu af þeim.

#4 diG - Þetta lið hefur floppað það oft á skjálfta að það er aldrei að vita, en þeir eru búnir að vera að bootcampa í bunker núna í einhvern tíma og aldrei að vita með deluxs þarna í liðinu hvernig fer.

#5 SeveN/Adios - Býst við að seven fari loksins að standa undir væntingum enda fínir gaurar og með þétt lið sem hefur spilað saman í ágætis tíma. Hvað varðar adios þá er þetta bara það sem þeir ná alltaf, eða þ.e góðu sæti.. lið sem floppar aldrei á skjálfa og ekki hægt að búast við öðru en góðu gengi

#6 Adios/SeveN - LOOK UP!

#7/8/9/10 - ætla ekkert að fara í meira, restin kemur í ljós á skjálfta og menn mega þessvegna bæta þessum sætum við með “comments” hérna fyrir neðan.

Ég þakka fyrir mig!
“undirskrift”

smari teh phocke