Við ætlum að reyna að halda DoD LAN hérna á fimmtudaginn næstkomandi kl 20:00

Ætlum við að reyna að smala saman öllum gömlu góðu DoD mönnum sem gerður allt viltaust hér áður fyrr og svo að sjálfsögðu þeim sem spila nú til dags og sjá hvað gerist.
Ef menn hafa það þá í sér að drepa ennþá. Spurning hvort sumir séu ekki komnir langleiðina yfir móðuna miklu og ráða því ekki við vopnin ?.. well við sjáum til :D (veit að það er allvega farið að gera legsteina fyrir nokkra meðlimi MKK ;)

Ég vonast til þess að sem flestir sjái sér fært um að mæta, því okkur veitir ekki af að hrista af okkur rykið og sýna enn og aftur hvað í okkur býr.

p.s. gæti trúað að það verði þröngt á þingi þannig að ég mæli með að menn mæti fyrr en seinna.


Endilega látið sjá ykkur

Kv
Bunkermenn
BeWare —> [-M.K.K-] Urbeinarinn Is Back