Sæl öll,

Ég er nýbyrjuð að spila CS og er með 1.5, það eru svo fáir serverar inná og því eru sumir vinir mínir sem spila CS að segja mér að ég eigi bara að fá mér 1.6 því að þar eru fleiri serverar, betri graffík og fleira því að ég er alltaf að segja hvað ég sé með fáa servera en þeir marga og þannig, það eru oftast bara svona 1-2 serverar inná 1.5 og þeir eru oftast fullir, eða tómir.

Svo er annar vinur minn (tölvu nörd) sem segir að það taki svo mikið pláss og það sé bara “pointless” og eitthvað þannig. Ég veit ekki alveg hvað ég á að gera, svo að ef einhver hefur ráð þá vinsamlegast látið mig vita.


Kveðja / Bónusgris