Drake var að keppa í 4 liða úrslitum í Clanbase síðastliðinn þriðjudag, við kepptum við stórgott lið frá Spáni sem hét “iMpures”. Hinsvegar fannst okkur einn spilari hjá þeim frekar gruggugur á tímum, og fólk sem var að horfa á HLTV bæði á spáni og Íslandi kom msgaði okkur og sagði að quaker hefði verið ansi skuggalegur.

Ég bjó til eina stóra mynd en hljóðið er stundum skrítið hjá fólki í því, en litlu klippurnar eru allar sama og er í stóru myndinni.

<a href="http://www.1337.is/~drake/">http://www.1337.is/~drake/</a>

Smá guide yfir atriðin:

<b>Klipp#1 :</b> Spariround hjá þeim, skoðið hvernig hann staðsetur sig, drepur einn um leið og hann snýr sér frá quaker, og miðar á 2 í gegnum lest.

<b>Klipp#2 :</b> Sjáið hvernig hann kemur niður stigann og miðar nokkurnveginn beint á mig og skýtur, Vinur hans var jú búinn að sjá mig uppá lestinni .. en akkúratt þarna?

<b>Klipp#3 :</b> Hættir við að fara áfram í rauða þegar félagi hans er drepinn, hættir við að fara inn þegar hann sér að það er CT að spotta í efri leiðinni. Fer aftur niður í rauða, fer varlega þangað til að hann sér dynamo og hleypur þá í hann þegar hann sér að hann er að reloada.

<b>Klipp#4 :</b> Er á fleygiferð og ætlar að fara niður neðri leið, EN WHAM um leið og CT sést að spotta leiðin hættir hann við.

<b>Klipp#5 :</b> Fer inn og plantar, ENGIN möguleg leið að hann geti séð Dynamo, færir sig skemmtilega til að vera í Skjóli og færir miðið þannig að hann er alltaf með Dynamo inná skjánum.

<b>Klipp#6 :</b> Ég kem út rauða , drep 2 terrora og þessi sér mig síðast við rafmagnskassa og fer að planta. Tekur miðið við horn og er einstaklega öruggur um að ég komi 100% þarna.

<b>Klipp#7 :</b> Snýr sér í hringi til að skanna svæðið, Spottar svo zombie þarna uppi. Bakkar , kemur aftur og miðar, færir svo miðið í þægilega stöðu um leið og zombie ætlar niður.

<b>Klipp#8 :</b> Takið vel eftir þessu. Atriðið er sýnt tvisvar, fyrst án Wallhacks og í seinna skiptið með því á. Hann sér rétt í olnbogann á CT sem hleypur framhjá gatinu, en svo virðist sem að hann fatti alltíeinu að hann hefði “ekki” getað séð hann án svindls og fer að spamma eins og fáviti .. eitthvað sem að fæstir spilarar myndu gera í þessari stöðu þarna .. hvað þá að tæma klippið svona augljóslega.

<b>Klipp#9 :</b> Ég er að laumast inn , það sem sést reyndar ekki þarna er að ég Sé rétt svo í rassgatið á honum þegar hann fer sem næst brúninni, Hann hinsvegar getur ekki séð mig frá neinu sjónarhorni. Ég hugsa mér gott til glóðarinnar og ætla að stratta hann og koma í bakið á honum , En VOIJLA hann snýr þokkalega á mig, takið eftir því þegar hann fer inn og miðar heppilega allstaðar þarsem ætla að fara.

<b>Klipp#10 :</b> Hann kemur út og VEIT af terrorista uppá lestinni vegna hljóða sem hann gefur frá sér. Takið hinsvegar eftir því hvernig hann drepur báða sem eru í rauða stiga. Þriðji gaurinn sem kemur niður rauða gefur frá sér hljóð svo að það er skiljanlegt að hann viti af honum. Takið sérstaklega eftir því þegar að terroristinn uppá lestinni við rauða fer niður af lestinni, hann fer niður ÁN þess að gera hljóð og gaurinn pre-aimar hann án þess að vita nákvæmlega hvar hann er.

<b>Klipp#11 :</b> Spariround sem þeir/HANN vinnur. Takið eftir því þegar hann er búinn að ná í Coltinn, kemur og miðar í áttinni að gryfjunni. Flestir sem líta fyrir þetta horn hafa mestar áhyggjur af gryfjunni ? Hann horfir hinsvegar heppilega í haus-hæð. HLeypur svo í átt að Spawni, sér gaur, hættir við að far þar, hleypur aftur til baka og sér gaur vera koma bókasafn og hlammar sér á rassinn og bíður eftir honum? Labbar svo inní bókasafnið og sér CTinn sem er kominn upp tröppurnar, hann hættir við að fara áfram og bíður eftir honum hinumeginn.

<b>Klipp#12 :</b> Ég drep terrorista , flassa og stekk uppí stigann og fer upp. Hann flassast og lítur líka frá, og getur engan veginn mögulega séð að ég fer þarna upp. Á þessum tímapúnkti eru 3 Ct-ar eftir með mér töldum og bara 2 terroristar eftir með quaker meðtöldum. quaker labbar út og miðar beint upp, og bíður sallarólegur og drepur mig. - Eina mögulega hintið er að ég gef frá mér svona “skref” hljóð þegar ég að ég stekk í stigann, en þetta hljóð kemur þegar maður tekur skref, dettur niður í gryfju t.d eða eitthvað annað.

<br><br><font color=“white”>Drake |</font>Some0ne
<a href="http://www.folk.is/zm1">Some0ne fanclub and more</a