Þetta er hugsað sem svar við fyrri póstnum sem að zlave gerði og þótt að nokkrar ástæður fyrir báðum spurningunum hafi komið fram þá ákvað ég að gera aðeins stærra svar hérna.

Ég hef persónulega ekki prufað þennan leik en það sem ég heyri tel ég vera nóg til að geta commentað á þetta.

Með nýjum leikjum þarf betri tölvur.
Það eitt er góð ástæða fyrir að strika cs ekki útaf kortinu strax. En ef að við pælum aðeins lengra fram í tímann:

Condition Zero er í rauninni ekki nýr leikur þó hann sé nýkominn út. Hann er byggður á gamalli hugmynd sem að virkar ennþá online hjá flestum sem að spila. Og er í rauninni Counter Strike á móti bottum , þó í betrumbættu umhverfi og með betri gervigreind.

Þetta er s.s single player fítusinn sem að á að vera rosalega skemmtilegur en ef að ég ætti að velja á milli CZ og einhvers annars leiks ef að ég er að hugsa um að kaupa mér skotleik þá hugsa ég að ég hef prófað þetta allt áður. Þetta er single player útgáfa af counter-strike og ekkert annað.
Þótt að það sé betri grafík þá er ekkert nýtt (kannski möp og módelin) en það sem ég er að benda á að við val mitt á SP skotleik þá vel ég frekar leiki sem koma með eitthvað nýtt í spilunina (UT2003/4 , veit ekki alveg hvað er komið út) en kannski er það bara ég.

Afhverju að taka 4 ára gamlan leik , breyta grafíkinni og laga villur eru og hafa verið í counter-strike og gefa það svo út sem nýjann leik?
Peningar is the answer.

CZ á eftir að deyja út fljótlega því að counter-strike á eftir að deyja út fljótlega.
Það er sagt að CS eigi eftir 1-2 ár (skv. gotfrag fréttastaffi og fleiri spilurum) og afhverju ætti þá CZ að eiga meiri lífstíma
Og ef að cs yrði lagður niður og cz settur upp í staðinn þá þyrfti ég líklega að uppfæra tölvuna mína og ég er nú ekki fjársterkur maður og myndi ekki gera það (í annað skipti) útaf sama leik sem á hvortsemer eftir að deyja.

Og já ég styð það að halda uppi scrim serverum fyrir counter-strike (at least) þangað til að CPL stjórnendur taka cz fram yfir counter-strike, s.s. klárum dæmið á meðan það er ennþá markaður fyrir það.<br><br>¬ <a href="http://www.stfd.com">ç</a>hmztry ¬

[gaulzi] <u>þið</u> eruð hvorteðer svo lélegir að það skiptir engu við hverja þið spilið