Kominn er upp 12 manna server á skjalfti10.simnet.is:27025. Þessi server er með FF=ON og maxrounds 17. Battlecom server er kominn upp fyrir þennan server þar sem 2 rásir eru annarsvegar Terror og hinsvegar Counter. Markmiðið með þessum server er að uppfylla óskir þeirra leikmanna sem hafa beðið um server þar sem menn geta stundað skipulagt teamplay í friði. Rcon passa á þessum server verður dreift til 1-2 aðila í þeim klönum sem hafa áhuga á að nota þennan server. Þeir sem vilja spila á þessum server og nota Battlecom tengt honum verða að senda póst á cs@simnet.is og biðja um hann. Stranglega bannað verður að dreifa þessum passa. Ef menn verða uppvísir að þvi að stunda fíflaskap á við teamkill af ásettu ráði verða umsvifalaust bannaðir á servernum.

Með von um góðar viðtökur,

[.Hate.]zlave
Simnet CS admin