Fékk þá brjálæðislegu hugmynd að prófa Natural Selction. Hleð niður öllu draslinu, installa og prófa að keyra.

Þá kom “Videomode not supported. Running in Safe Mode”.

Ég hugsa: “Drasl er þetta!” og fer bara í gamla góða CS í staðinn. Hvað gerist þá?

Nákvæmlega sömu skilaboð koma í CS! Núna get ég ekki stillt hann á OpenGL aftur og get bara keyrt hann í ‘software mode’!

Hvaða snillingur getur hjálpað mér, gamla karlinum?
Skjákort Nvidia FX5600.

Með fyrirfram þökk,
CS: [.Oldies.]GilliBoy
CoD: PrivateParts(ICE)