Jæja það kom loksins að því að mamma og pabbi komust að því hvað Cs væri og eru núna og eru núna að reyna að heila þvo mig með því að segja að Cs sé ekkert annað en óþarfa dráp og bla bla….. og eru nú samtals búin að senda mig i mánaðar bann vegna þess að þau telja mig verða orðinn fýkil (sem er nokkuð rétt) en sama hvað ég reyni að segja þau hlusta ekkert og auðvitað hefur það engan árangur borið. Svo er sagan orðin þannig að Cs snúist útá Mellur,Dóp,Limlestingar og Gvöð veit hvað fleira…..
Þess vegna er lítið LAN mót sem ég og vinur minn erum búnir að skipuleggja farið i vaskinn því gamla settið er frekar ila við það,vegna þess að ég sé að hvetja til ofbeldis leikja og sé að hafa slæm áhrif á krakkana sem keppa á þessu móti og ég held meira að segja að foreldrar séu búnir að gera mig réttdræpan.


þannig að ég hvet alla til þess að halda foreldrum utan Cs þannig að þið sleppið við vésen því foreldrar og Cs fara ekki alltof vel saman!!!
Þrátt fyrir öll þessi bönn sem ég er í hætti ég ekki i Cs heldur efli spilun ef eithvað er og hvet alla sem eiga í útistöðum við foreldra að HÆTTA EKKI í CS!!!!!!!!! því þetta er það sem við viljum gera og látum enga foreldra skemma það..

Kv. (til þeirra sem nenna að lesa þetta)
NED