Ég á í smá vandræðum. Þegar ég reyni að setja Day of Defeat Beta 1 serverinn inn í listann (Half-Life browserinn) þá fæ ég bara unknown. Er búið að leggja hann niður? Ég lendi vanalega ekki í neinum vandræðum með servera… sértsaklega ekki íslenska. Eiga einhverjir aðrir við sama vanda að striða eða er þetta bara ég?

Ég var að uppgötva Day of Defeat og sá hversu rosalega flott mod þetta er. Svo ætlaði ég að fara að spila og… ömm, þið vitið restina.

Eitt enn: Vinsamlegast ekki segja mér að nota GameSpy. Hann eyðileggur alltaf fyrir mér configið mitt og svo kemur alltaf fjárans consolið niður og ég get ekki náð því upp. Svo að ekki ráðleggja mér að nota hann!<br><br>Royal Fool