Já nú er að styttast í gzero mótið okkar. Og þetta byrjar laugardaginn 11 klukkan 11 : 00 sem þýðir að menn eiga að vera mættir fyrir þann tíma

mótið kostar 2500 á mann

Liðin sem eru skráð að þessu sinni eru fleirri en hafa verið áður, sem er bara gott :D

Þetta eru liðin sem koma til með að mæta.

ABEO Superstars :P
en þetta lið er samansafn af góðum leikreyndum mönnum sem og hitkilla gundo og fleirri sem hafa getið sér gott orð innan dod heimsins og koma þeir til með að verma eitt af efstu sætunum. og eru abeo þeir sem unnu fyrsta gzero mótið.

Necro
Þetta er lið sem allir kannast við. hafa unnið fleirri keppnir en öll íslensk dod lið til samans. og átt menn í landsliðinu sem maður getur ekki talið upp á annari hendi :D
en þeir hafa aldrei unnið gzero mót og ætla væntanlega að mæta sterkir til leiks og sýna okkur hversu þeir eru megnugir.

God
mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að þeir tóku fyrst þátt og eru eitt besta og fjölmennasta clanið á klakanum eins og er. Þeir mæta með 2 lið því að þeir hafa það mikið af stjörnum til að gera 2 lið sem eiga mikla möguleika á að gera mikinn usla. enda eru þeir kunnugir tölvunum á gzero.

Gzero
já við í gzero erum að koma saman í þetta mót til að sýna hversu lengi lifir í gömlum glæðum. Við höfum alltaf vermt annað sæti og hver veit nema að heimavöllurinn getur gefið okkur meira í ár en hann hefur. við höfum ekki spilað saman mikið uppá síðkastið en það vita margir að við erum engin lömb þegar á völlinn er kominn.

Hannibal
já þeir í HB koma hér á sinn fyrsta gzero mót. En þetta er gamalt og rótgróið clan sem hefur verið að lana á þeirra heima stað sem gefur þeim smá reynslu í sona móti. Ekki myndi ég spá þeim háu sæti í þessu móti. en hver veit hvort að þessir koma sterkir sem underdogs ;)

Bunker
þeir eru ungir og sprækir. eiga ekki lengstu söguna en þeir hafa áhugan og mæta með 2 lið til leiks. þeir hafa nokkra mjög góða leikmenn en eiga eftir að slípa sig mun betur saman og eiga smá eftir í land til að vinna sona mót. en hver veit hvort að þeir komi og brillera.

þá eru þau clön sem ég veit að ætla að taka þátt komin. en það er enn hægt að skrá sig til leiks og þótt að þú sért ekki í clani er hægt að senda mail á gisli@groundzero.is
það eru núna komnir 5 sem eru einir og vantar einn enn þá er komið 1 pickuppclan.

og endilega bara að mæta á svæðið því að það vantar oftar en ekki lánsmenn og hægt að setja upp fleirri pickup clon!!!

en [GZero]B.J.GUNNERS kveður í bili