Ástæður þess að de_train var valið sem úrslitaborð á mótinu eru nokkrar. De_train hefur verið gríðarlega vinsælt úti sem final borð og hafði það að sjálfsögðu áhrif á mína ákvörðun. Ég sat frammi fyrir því að velja milli de_dust de_train og de_nuke. De_dust hefur alltaf verið notað sem úrslitaborð hérna heima.
Ég geri mér fulla grein fyrir því að de_dust er í uppáhaldi hjá mörgum en þeir sem eru búnir að fá nóg af því eru alveg jafnmargir ef ekki fleiri. Nú hvað með það eftir að hafa tekið de_dust út þá sátu de_train og de_nuke eftir, bæði afbragðs match borð. Eftir að hafa skoðað hvað er notað úti þá varð de_train fyrir valinu. Það var alveg ljóst frá byrjun að sumir myndu frussa og froðufella yfir þessu en þið verðið bara að taka þessu, það er ekki eins og ég sé að velja borð á við militia eða assault í þetta :). Vissulega kemur tilkynningin seint en þetta er bara ekki efst á blaði hjá mér þetta mótið því ég veit að þið kunnið allir þrælvel á þetta borð enda hefur það verið spilað andskoti lengi. Prufum svona einusinni eitthvað annað en de_dust OK!! :).