Jæja, ég þarf víst að fara kaupa mér nýja mús … en músin sem ég er með núna er Ms 3.0 Explorer og hef verið með svoleiðis mús sona eiginlega allan þann tíma sem ég hef spilað cs, nema ég var með MX500 í einhverjar vikur en líkaði ekki mjög vel. Núna spyr ég þá sem hafa verið með Microsoft mýs áður en hafa keypt sér þessa nýju Logitech MX310 sem margir kalla mjög góða, jafnvel betri en MS Intellieye mýsnar. Væri gaman að heyra frá þeim sem hafa þennan samanburð hvað þeim finnst :) Er hún léttari og þægilegri í hendi en MX500 músin, og er búið að laga þetta Logitech - CS takkavandamál ?