Ég hef verið að fást við þetta vandamál núna í bráðum tvær vikur. Málið er það að þegar ég skýt skoti úr byssu á eigin server (þegar ég geri New Game) fer það á nákvæmlega réttan stað. Svo þegar ég fer á hvaða server sem er þá hætta skotin sem ég skýt að fara rétt. Þó svo ég standi grafkyrr og skjóti einungis einu skoti hittir það samt ekki í miðju miðsins. Ég hef prófað að “skrúbba” vinnsluminnið og fikta eitthvað pínu í netstillingunum (ekki mikið þó) og að slökkva á öllum forritum í gangi á meðan, en ekkert af því virðist vinna á þessu.

Kann einhver lausn?<br><br><font color=“gray”>[</font><font color="blue">></font><font color="gray">] </font><font color=“blue”>Nemesis</font><font color=“white”> aka Bjössi kvennagull ;D ;D ;D</font