Hate er ekki eina liðið á Íslandi. Önnur toppklön á Íslandi eru með álíka góð lið. Það sem mörg Íslensk klön vantar er meiri breidd þannig að það sé alltaf hægt að koma með 6 góða spilara í klanmöts. Klanmöts leiðir til þess að menn fara að spila betur saman. Breidd í liðum veldur því líka að menn verða hræddir um stöðuna sína í liðinu og haga sér þess vegna frekar eins og menn.

Sex topp menn í klani er ekki nóg til að það nái toppárangri. Til þess þarf minnst 12 toppspilara.

Ég nefni þetta vegna þess að ég vil endilega sjá fleiri Íslensk klön á toppnum í USA og Evrópu (þegar/ef tengingin kemur upp). Ekki vantar góða spilara og ekki vantar góða leiðtoga í þessum toppklönum. Eina sem vantar er breiddin og vilji til að spila við kanann um miðja nótt (oft frá kl 2:00) og þá er þetta komið.

Ég vil þess vegna bara hvetja þessi toppklön til að gera það sem þarf til að ná betri árangri.

Kveðja [.Hate.]YourGuts
I really do.. nnnnt. I love you guys!