Það er alveg endalaust skrýtið hvað fólk getur pirrast. Ég bara einfaldlega fatta þetta ekki. Það lemur ó borðið, lyklaborðið og skellur músini í borðið ég fatta þetta bara ekki. Ég verð að viðurkenna að ég gerði það sjálfur en er alveg hættur því. Þegar ég var á Skjálfta maður mátti varla labba án þess að sjá einhvern gera þetta. Hafið þið ekki tekið eftir þessu sjálfir/ar. Er það leikurinn, er það maður sjálfur eða hvað er það sem veldur þessum pirringi. Allir öskrandi í TS. Veit einhver af hverju maður verður svona pirraður í CS og öðrum netleikjum ? :o
acrosstheuniverse