Mér datt í hug að vekja athygli á því…

að það ríkir mikil tilhlökkun í herbúðum GGRN um þessar mundir. Og hvers vegna skyldi það nú vera? Jú, næsti leikur okkar í ICSN er við hið æðislega ofur clan Heit. Við höldum vart vatni af spenningi og er það von okkar að þeir flengi okkur nú duglega einsog þeir hafa reyndar gert við alla aðra andstæðinga hingað til. Hvað er betra en smá smellur á bossann til að vekja menn til dáða? Nei, ég bara spyr. Við munum sennilega eiga erfitt með að kreista gikkinn þegar við mætum öllum þessum ofurséníum og hetjum sem sannarlega eru okkar idol, bæði í leiknum sem og utan hans.

Með von um skjótan en jafnframt lærdómsríkan dauðdaga.

[GGRN]Josh