Ég hef verið í tómum vandræðum með steam og var að henda því út og setja það upp aftur. Ég hef gert það oft áður en núna þegar ég var að fara að velja hvaða leiki ætti að setja inn kom í framhaldi af því að það væri verið að registera cd-keyinn hjá steam. Það kom náttúrulega error því ég er búinn að registera hann áður. Ég er að nota sama account. Vitið þið um eitthvað til að redda þessu? Það er enginn möguleiki að velja um að maður sé búinn að registera cd-keyinn áður.
Hjálp er vel þegin ef hún er fyrir hendi.