Já, það er sko komið nóg.

Þetta verður mitt síðasta comment á þessum kork.
Ég er búinn að fá mig fullsaddann af gelgjunum, dissinu, neikvæðninni og leiðindunum sem er það eina sem þið getið látið útúr ykkur, og það eina sem þið greinilega viljið lesa.

Ég er búinn að vera í þessum leik og fylgjandi þessu áhugamáli í næstum fjögur ár og hef gengið í gegnum flest allt kjaftæðið og ruglið sem þið getið sullað útúr ykkur, en þetta var síðasta stráið.

Héðan í frá getið þið rifist og böggast og komið með ykkar gelgjucomment endalaust og rifið niður það sem aðrir reyna að gera í friði fyrir mér.

Þessi endalausa neikvæðni sem er að gegnumsýra þetta samfélag er meira en ég, og svooooo margir aðrir gamlir pennar sem skrifuðu hérna reglulega þolum.

Þetta er orðinn staður fyrir gelgjur og neikvæðnisseggi, og ekkert annað má láta á sig reyna hér lengur, nema það sé skotið í kaf af þeim sem hafa EKKERT BETRA AÐ GERA, en að lesa jafnvel það sem ÞEIR VITA GREINILEGA HVAÐ ER Á TITLINUM, BARA TIL AÐ DISSA ÞAÐ.

Ég þakka öllum þeim sem hafa haft eithvað jákvætt og fræðandi á þessum kork að segja og vona að þið hinir drullist til að fá nokkrar heilasellur til skiptana, bara svo að þetta gefi ekki alveg upp öndina hérna.

Verið þið blessaðir.<br><br>You know I am the LORD! When I lay my vengeance upon thee!
—————————–
Helgi {Preacher}