Af hverju er það þannig að þegar einhver sem er á server er að rífa kjaft að fólk byrjar að kalla hann, 13 ára lúser sem hefur ekkert betra að gera en að rífa kjaft í cs.

Af öllu fólki sem ég þekki sem rífur kjaft á server, veit ég ekki um neinn yngri en 16 ára.

En aftur á börnin sem spila þennan leik, taka því svo alvarlega að þau halda að heimurinn hrynji ef frægu cs-spilararnir hafi eitthvað út á þá að setja. Þess vegna eru 13 ára púkar fínir CS-spilendur þannig séð.

Mér finnst mjög gaman að rífa kjaft og vera með leiðindi á server, fer alltaf að hlægja þegar fólk reynir að rífast við mig.

En af hverju í fjandanum haldiði alltaf að ég sé fjórtán ára?

Næst þegar þið sjáið “Krazeee” “Fearz” “Bombaztic” eða “FunkaFresh” á server rífandi kjaft.

Þá skuluð þið muna það að ég er sautján ára lúser sem hefur ekkert betra að gera.

Vildi bara benda á þetta :)