Sælir doddarar!

Margir hafa eflaust heyrt það að Blizz sé hætt! En ein ástæðan fyrir því er sú að 4 meðlimir Blizz eru farnir yfir í Bunker. Mér finnst fáránlegt að menn skuli vera að hætta í einu af þessum fáu clönum sem til eru hérna og fara yfir í annað! Ég veit ekki betur en að Bunker sé með fullt af gaurum og þurfi ekki 4 menn í viðbót!
Í öðru lagi er það kannski út af því að innanborðs í Blizz eru tjahh drengir sem eru á blómaskeiði lífs síns (gelgjuskeiðinu) og finnst okkur þeim sem eldri og vitrari, þeir fara soldið í taugarnar á okkur!

En jæja núna eru s.s 4 eða 5 klön á Íslandi sem að mínu mati er ekki voðalega spennandi að keppa í DOD-ice ef svona fá klön keppa. En allavega vil ég heyra ykkar álit á þessu!

kv, [Hermenn]Asgeir