Sælir,

Var að setja upp 1.6 server, [Noobz] serverinn, og get ekki kvartað undan Steam. Þessi skjöldur angrar mig samt helvíti mikið. Hann er góð viðbót, það er engin spurning. Þetta breytir taktík leiksins. Það sem er samt kjánalegt er að það fer ekkert í gegnum skjöldinn.

Ég hef heyrt að það sé hægt að dánlóda e-u skripti sem gerir það að verkum að skjöldurinn haldi ekki öllu 100%, og þá mismunandi eftir úr hvaða byssu er verið að dæla í hann. Eins er til script sem lætur menn hlaupa hægar með skjöldinn. Held að þetta væri góð leið til að jafna þetta aðeins.

Ef einhver getur bent mér á það hvar hægt er að dánlóda þessu, eða hreinlega deilt kóðanum þá væri ég eins glaður og hani í hænsnabúi.

Það væri ágætt ef menn færu ekki að skíta þessar pælingar út því þetta er aðeins hvernig okkur finnst að þetta ætti að vera og viljum setja serverinn upp á þennan máta. Þannig að allt skítkast og tuð er vinsamlegast afþakkað.<br><br>______________________________

Everyday | Maggi
Nick | Klikan
CS | [Noobz]Buffa.sig
IRC | Hvað er nú það?
@ | <a href=“mailto:m@insight.is”>Sendu mér póst</a>
URL | <a href="http://noobz.blogspot.com/">[Noobz] - homepage</a>
Server ip | 194.144.1.94:27015

______________________________

Er ekki kominn tími á kaffi og munntóbak?
If you snooze you looze
______________________________