Kl. 1 í nótt eru úrslit TPG Deildar-keppninnar. Þar munu leiða saman hesta sína FU og R.U.N.S. Leikurinn er merkilegur fyrir okkur íslendinga að því leiti að þetta er í fyrsta skipti sem íslendingar keppi í úrslitaleik í einhverjum erlendum deildum. FU er samansett úr allflestum liðsmönnum Necro annars vegar og þéttum hópi af bandarískum spilurum hins vegar. Í kvöld munu íslenskar kempur á borð við Heinkel, PimpClinton, Baazuuka, Guddi og jafnvel fleiri spila. TPG er ágætlega metinn deild þar sem í efsta riðlinum eru lið af CAL-m caliber eins og R.U.N.S., 5.o og UL|M. FU er einmitt í efsta riðlinum..:)

Liðið sem mun mæta okkur í kvöld er ekki af verri endanum. R.U.N.S. spilaði úrslitaleikinn í CAL-m og tapaði honum í mjög spennandi leik. Þetta verður því erfiður leikur í kvöld en FU hefur í sífellu verið að bæta sig og því er von á hörkuleik!! Ég hvet hér með alla sem verða vakandi að hvetja landa sína áfram í þessum mikilvæga leik!!

Hægt verður að fylgjast með honum í gegnum HLTV á 66.111.37.130:27020 !!<br><br>Pinko Elephanto
DoD:
[Necro]Bleiki Fillinn
Eve-Online:
FrinXs member of The Collective