Mér fannst besti leikurinn á skjálfta, eða réttara sagt MEST spennandi var |eCCo| Spariskor vs ASNI - Z í de_clan1_mill, úff.. 2 overtæmar. Ég var nú ekki að spila en vá!… ég var samt að drulla á mig.
Ég var að deyja úr hlátri þegar einhver ecco gaur (maniggi alveg held það hafi verið einz1, correct me if i´m wrong) drap ASNA - ofninn_hans_afa á seinustu sekundunni! Þetta var ekki einu sinni seinasta sekundan það var komið 0, svo réttara sagt 0.5 ! Þvílík óheppni… þetta skipti öllu, því þetta gerðist þegar asni voru ct, og asni töpuðu seinna t part 2-1 svo að þá kom annar overtime… Kannski hefði þetta farið öðruvísi, en hver veit? Síðan í overtime nr.2 þá tóku ASNI svo sannarlega ecco með deagle rushi eftir að hafa tapað 1roundi, s.s. yrðu að vinna öll roundin í þeim overtime vegna þess að ecco unnu ct-part 3-0…

Ég var fyrir aftan ASNA og skemmti mér stórkostlega! Besti leikur sem ég hef séð!

Maður leiksins… ekki spurning, |eCCo| CoconutZ… ef það verður sent demo á demos.skjalfti.is takið það og speccið coco.
Veit nú samt ekki hvort hægt sé að senda hltv-demo ellegar in eyes demo.

Einnig heyrði ég að Drake - Drake vs Ice - Hetjur hafi verið mjög skemmtilegur og MJÖG spennandi.

En hvað fannst ykkur ? Segið mér… I'm all ears!