Mig langar til þess að þakka símnet fyrir eitt stærsta og besta skref sem mar hefur lengi séð frá þessu blessaða fjarskiptafyrirtæki í llllaaannnnnggggaaannnnn tíma og það til góðs ;)
en þeir sem átta sig ekki á því hvað ég er að tala um, í dag (föstudagur) voru allir þeir sem voru hjá símanum með 512.. færðir uppí 1.5 ADSL sér að kosnaðarlausu..

tekið af www.siminn.is
———–
22. ágúst 2003
Margfaldur hraði á ADSL fyrir sama verð

Núverandi ADSL512 verður uppfærð í ADSL1500 og boðin áfram á sömu kjörum 3.500 krónur á mánuði. Þetta mun hafa í för með sér að hætt verður með núverandi ADSL512 áskriftarleið. Nýja ADSL1500 áskriftarleiðin verður útfærð með þeim hætti að 1,5 Mbs hraði verður að notanda og 256 kb/s frá notanda.

Núverandi ADSL1536 verður uppfærð í ADSL2000 og boðin áfram á sömu kjörum 6.860 krónur á mánuði. Þetta mun hafa í för með sér að hætt verður með núverandi ADSL1536 áskriftarleið. Nýja ADSL2000 áskriftarleiðin verður útfærð með þeim hætti að 2 Mb/s hraði verður að notanda og 512 kb/s frá notanda.
———–

Eina sem ég get sagt er bara frábært síminn..

[.evil.]Indy / Vignir
indy@simnet.is
* Hail to the king baby *