Eins og þið allir vitið þá er búið að vera rosaleg umræða um hvort eigi að leyfa notkun scripta á mótum eða keppnum eða eithvað þannig.
Persónulega sé ég ekkert að því að hafa buy script og jafnvel switch scripts og one push grenade throw script

En eins og þið allir vitið þá er þetta svo svakaleg umdeila hvað af þessu er unfair advantage og jafnvel svindl að mér finnst það rosalega sniðugt bara að banna allann pakkann og hafa þetta default.

Persónulega fer það dálítið ílla með mig þar sem ég er orðinn algjörlega háður buy scriptunum mínum að kaupa allar sprengjur og defuse kit sem ég gleymi annars að kaupa en það er bara eithvað sem við verðum að venja okkur á aftur, að nota default.

Og ef þið pælið í því þá gerir það ekkert nema kridd í CS að hafa meira room fyrir human error, Þá er bara meira sem við verðum að þjálfa okkur í (eins og að muna eftir defuse kit ;) sem í mínum augum gerir okkur bara betri og pro gaura meira pro.

Þess vegna, jafnvel þótt ég sé með því að hafa script leyfð þá er ég einnig með því að banna þau alveg því þau valda deilum og eins og einhver , minnir Skarsnik sagði, hvar liggur línan á milli svindls og smá shortcut.

Ef einhver getur komið með útskýringu á því, svo góða að allir bókstaflega verða að sætta sig við hana, þá kannski er hægt að leyfa script á mótum.

Annað held ég bara að það verði added twist to the game að fara að nota gamla default aftur, og persónulega, áður en ég fer inn á server aftur, þá verð ég kominn með default stillingar. :)

Enn eitt sem ég vildi vita frá ICSN strákunum, er örugglega ekki hud_fastswitch 1 leyft?

Það er sko sannarlega ekki script og í mínum augum er bara stillingaratriði eins og upplausn.

[DCAP]Preacher.
<BR