Sælir herrar mínir.

Hef verið að spila í smá tíma CS og það eru nokkur atriði sem mig hefur alltaf langað til að vita. Ef einhver almennilegur spilari getur aðstoða mig væri það fallega gert.

1. Hvernig nákvæmlega setur maður inn skipun til að geta skipt beint úr AWP í pistol, þ.e. halda inni takka. (Erum ekki á leiðinni að spila á Skjálfta eða öðrum mótum).

2. Eru einhverjir að nota Mouse skates, eða sérstakar músarmottur fyrir CS spilara og munar það miklu?

3. Ég er með optical Microsoft explorer intelli mús 3,0, hvað ætti rétt senstivity að vera, er með það núna í 5,4. Veit að þetta er einstaklingsbundið, en kannski er einhver almenn sem menn eru ásáttir um að virki best.

4. Hef heyrt að menn séu að nota interp.ex eitthvað dæmi, er þetta eitthvað leyfilegt og hvað er þetta. Er hægt að stilla hittnina á einhvern löglegan hátt. Auðvitað “practise makes perfect”, meina frekar einhver stilling í console sem auðveldar manni að hitta betur.

Ef menn geta svarað þessu á vitrænan hátt er ég þakklátur.

[Noobz]Fautinn http//klikan.tripod.com
við erum með server og er öllum velkomið að spila á honum, endilega dl. möppum af heimasíðu. Við erum í stöðugri leit að góðum möppum og hikum ekki við að prófa eitthvað nýtt og henda því út sem okkur líkar ekki. Ef nýleg Clön og meðalgóð vilja scrimma hafið samband á heimasíðunni eða m@insight.is

Fyrst komu “Murk” síðan "[Noobz]“ þ.e. verðandi heimsmeistarar árið 2020 í CS”