Sælir allir.

Ég er nýlega byrjaður að skoða Worldcraft og er farinn að ná örlitlum tökum á þessu. Það fyrsta sem mér datt í hug og hef verið að reyna að finna, er hvort menn séu ekki að skiptast á einingum sem þeir hafa smíðað. Ég býst við að þeir sem eru lengra komnir eigi helling af ýmsum hlutum á “lager”. Þar á ég við t.d. bílar, hús, göng, tröppur, o.s.frv..

Ég trúi varla að menn liggi á þessu eins og ormur á gulli, og vilji ekki gefa neitt frá sér.

Alla vegana þá vantar mig að smíða trukk, sem menn geta ekki keyrt. Ef einhver getur bent mér á góða leið til að smíða slíkan eða á eitt stikki, þá vinsamlegast svaraðu þessu póst.<BR