Ég veit að þetta er öruglega 3-5ti korkurinn sem heitir þetta en ég hef soldið að segja.

Eftir því sem að ég hef tekið eftir er ekki hægt að laga þetta lagg á serverum einfaldlega vegna þess að vandamálið liggur ekki hjá clientinum (biðlinum) heldur hjá Simnet.

Ég hef tekið eftir því undanfarið að þegar að það er lítið að gerast á serverum og mest allir eru sofandi eða eitthvað í þá áttina þá er leikurinn næstum lagglaus nema kannski það sem að er hjá clientinum.

Þá kemur up spurningin afhverju þetta laggar ekki/minna ef´að þú tekur átt í þessu “Simnet Testi” ég held að ástæðan sé sé sú að allir sem að skrá sig í þetta “Test” séu færðir á annan kapal eða að önnur tölva sé að sjá um að halda þeim uppi og þar sem að að eru ekki jafn margir á þaða tölvu eða kapli þá laggi það minna.

Ef að þetta er rétt það sem að ég held þá er voða lítið sema ð við getum gert NEMA að hafa samband bið Símnet ógurlega mikið og fá þá til allavega að athuga hvort að þetta lagg vandamál sé þeirra sök.