Nú má satt að segja að það sé óhætt að uninstalla counter-strike og installa Day of Defeat v.1 því þetta er leikurinn sem mun verða spilaður meira og meira.

Hann er hreint og beint “óhugnalega” flottur, þegar ég fór í hann fannst mér ég ekki vera verður þess að spila hann en það breyttist fljótt. Ég spilaði alla nóttina sem hann kom út og skeytti engu um það að ég þyrfti að fara í samræmt próf daginn eftir.

Allir classar vel gerðir, fínustu skin og skemmtilegasta gameplay frá DoD 1.3b,sem allir(flestir) ættu að kannast við.
Axis á móti Bretum og Bandaríkjamönnum, frábær möpp hafa verið endurgerð og bætt og enginn mp online leikur jafnast á við þennan!!

Leikurinn er um 173 mb að stærð og vel þess virði að dl honum þessum, ef þið byrjið að rífast útí því að ég gaf ekki upp neinar upplýsingar classa o.s.fr. þá þurfiði bara einfaldlega að dl leiknum til að komast að því eða fara á www.dayofdefeatmod.com og finna online manual.

Hér er skráin http://static.hugi.is/games/hl/dod_v10.exe

Bless