Ég vil þakka öllum sem spiluðu dod í dag á Blast… þetta “kveðjupartý” var mjög mikið fjör og fylltist serverinn næstum.

Það gekk svoldið brösulega í fyrstu til að fá einhverja til að spila á Blast, en það tókst að lokum og endaði með því sem greint er hér fyrir ofan.

Biðst afsökunar til allra þeirra sem fannst “ofvirkni” mín á irkinu og á simnet servernum til að fá fólk til að fara á Blast pirrandi:)

Við vonum allir að nýja útgáfan verði skemmtileg og fjörug og það verði mikið spilað af öllum HL mod spilurum landsins:)

Fyllikall
Snoother