Hætta í kánter stræk, cs er sjúkdómur. Þessi rusl leikur er búinn að skemma allt fyrir öllum og þar á meðal mér. Búinn að kúka á mig í skólanum íþróttinni minni og allur þessi helvítis tími sem fer í þetta er með ólíkyndum, ég er búinn að eyða 50.000 kr í einhvert drasl í vélina til að meika það betur í cs, núna er ég hættur, og hef ekki spilað í mánuð, ég segi ykkur bara að eyðileggja ekki líf ykkar með þessu rugli. Ég man t.d. ekkert sem er búið að gerast síðasta ár bara því ég var í cs í öllum frítíma sem ég fékk, og ég græddi ekkert á þessu að eyða öllum tíma mínum í þetta.

Ég tók eftir því að skapið er miklu betra, ég er ekki jafn pirraður og ég var alltaf, gengur betur í skóla, stunda íþróttina mína töluvert meira og er byrjaður að vera miklu meira með vinum mínum.

Það sem ég gerði til að hætta var að eyða cs útaf tölvunni og segja upp adslinu.

Ég er 18 ára og finnst það bara ömurlegt að hafa eytt heilu ári og besta tíma lífsins í svona rugl.

Ef fólki finnst ég heimskur og asnalegur að vilja ekki eyða lífinu í eitthvað “skemmtilegt” þá gæti mér ekki verið meira sama hvað fólki finnst.

Ég veit sjálfur að þið sem eigið eftir að hætta í cs einhverntíman eigið eftir að sjá eftir þessu.

Fleimið mig eins og þið viljið! En hugsið aðeins útí þetta..