See Above. Þetta mod er mjög skemmtilegt þrátt fyrir dálítið ójafna classa, og þá er ég að tala um Pirate Skirmisherinn og Viking Berserkinn. En hvað um það, aðalgame-modið er Bootie, í því eru 3 lið, Víkingar, Sjóræningjar og Riddarar. Riddararnir verja oftast bæ eða kastala, þar liggja gullkistur og þessum kistum eiga hin 2 liðin að stela og hlaupa með heim. Liðið fær síðan stig fyrir hverja kistu á nokkurra sekúndna fresti að ég held. Vopna og kalla-módelin og animationin eru FYRSTA FLOKKS og jafnast auðveldlega á við CS. Classarnir eru svona melee gaurar, spjóta- sverða - axakallar og síðan eru bogamenn, sjóræningjar með púðurbyssur og þess háttar. Ef þér líst vel á þetta kíktu þá á www.pvkmod.net. Ó já, eins og ég sagði í titlinum þá vantar íslenskan server þannig að maður geti byrjað að spila PVK fyrir alvöru! “Wink wink” Jafo.

|D|Ravenkettle, archer wannabe<BR
Ravenkettle