Ég vil ekki vera maður í að kvarta, en C´MON!!! Ég og Serial_Killer vorum að madsa við clan sem heitir “Killaz” á 2vs2 laddernum á <a href=www.provinggrounds.com>Proving Grounds</a>. Fyrst tókum við de_dust og síðan cs_militia. Ég vil bara spurja hvað mar á að gera ef mar grunar eitthvað clan um svindl á ladder… Málið er að þeir voru að pinga milli 200 og 300 meðan við vorum með ca. 100-150 (fyrst). Þeir hittu nærri alltaf í 1-2 skotum og headcöppuðu okkur og þegar þeir voru að AWPa, hittu þeir alltaf í fyrsta skoti jafnvel þótt þeir væru með 200 meira í ping en við. Mér finnst þetta vera frekar ótrúlegt en hvað um það. Ég verð að sætta mig við að þetta mads tók aðeins 40 mín og við vorum ownaðir (af svindlurum held ég). Ég dett úr öllum fílíng þegar ég sé svona ótrúlegt dæmi…



dArkpAcT<BR