Vill ég byrja á að reyna að útlista reglur bæði server.gamedome.is og server2.gamedome.is, það er þær reglur sem koma þessu máli við;
1. Þetta eru FFA (Free For All) serverar, þar af leiðandi er strattað clan sem greinilega eru á teamspeak eða álíka forriti ekki vel liðinn ( kickað)

2. Á þessum leikjaþjónum eru HARÐAR reglur um kjaftbrúk og tekið á því af fullri hörku (kick, ban við endurtekið brot)

3. Á þessum leikjaþjónum hafa viðskiptavinir gamedome forgang, þar af leiðandi er fólki stundum kickað að því er virðist ástæðulausu.

4. Þar sem þessir leikjaþjónar eru á sömu tengingu og mikið af notendum þeirra (sumsé á innra neti gamedome) þá er fólk með háan svartíma (hátt ping) kickað eftir nauðsyn, þegar fólk er með það háan svartíma að allur serverinn laggar, þá gengur það ekki upp og gripið er til aðgerða.

Annars vildi ég líka svara hinum ýmsu ásökunum þar sem að ég sjálfur er umræddur rcon í greininni, í fyrsta lagi þá brutu meðlimir [BS] reglu nr.1 af þeim ofangreindu, í viðbragði við því þá nýtti ég mér “say” “rcon say” og “admin_csay” til að vara þá við að ef þeir myndu ekki yfirgefa serverinn þá myndu þeir hljóta kick.

Þeir urðu ekki við þeim tilmælum, og eftir fjölmargar aðvaranir þegar ég taldi mig hafa reynt eftir bestu getu að leysa þetta friðsamlega greip ég til örþrifaráða og “sparkaði” þeim útaf leikjaþjóninum server2.gamedome.is.

Skömmu seinna voru 2 þeirra komnir aftur inn og byrjaðir að brúka munn á álíka þroskaðan hátt og “ég lem thann sem kickadi mer” og þar fram eftir götunum, með því þá brutu þeir reglu sem ég kaus að kalla nr.2 hér að ofan.

Varaði ég þá við um leið og þeir týndust inn hver á eftir öðrum að yfirgefa þjóninn eða þá að þeir myndu hljóta 180 mínútna bann frá þjóninum, þeir hlýddu því ekki og þar af leiðandi fékk hver þeirra 180 mínútna bann. í allt 5 manns.

Einn af þeim varð eftir þar sem að hann hafði breytt nicki sínu úr "[BS]Dadz(NewKilla)“ í ”[TVAL]NewKilla" og þar sem hann sýndi fram á að hér var [TVAL] meðlimur á ferð hélt ég að hægt væri að tala við hann, hélt hann uppteknum hætti félaga sinna með ógurlegum kjafthætti og látum, sagði ég honum þá irc nick mitt ( Steini`, fyrir þá sem vilja koma með spurningar varðandi þetta mál ) og skrifaði síðan hud_saytext_time 0 í console þar sem ég var tengdur við þjóninn til að spila þennan indæla leik counter-strike en ekki rífast á eitthvern mjög óþroskaðan hátt.

Þegar ég síðan “quittaði” cs eftir skamma stund leit ég á irc og sá ekki msg frá einum né neinum viðkomandi þetta mál, rek ég síðan augun í svona skítkast hér á hugi.is/hl og fannst frekar illa gert þar sem þetta mál kom engum öðrum við og þar að auki að þetta var nafngreint, sem að flokkast víst undir skítkast og var refsivert athæfi hér á huga, svona ef ég man ekki betur.

Sá póstur var sendur inn af notandanum Necron86 sem ég man ekki betur en sé einmitt [TVAL]NewKilla.

Hér með hef ég svarað fyrir mitt leiti og upplýst alla þætti málsins án þess að vera með skítkast á einn né neinn, vill taka fram að þessi grein er nafngreind af þeim ástæðum að ég sé ekki betur en auga fyrir auga gildi hér í counter-strike heiminum og með þessu áframhaldi verða allir augnalausir á endanum, en hef ég allavega kjarkinn í það að skilja hér eftir fullt nick til að hver sem vill geti spurt mig út í þetta mál á irc þar sem ég er ekki mjög virkur huga notandi, sérstaklega ekki á korkunum

cs: Steini ; Steini,gD
irc: Steini` ; Steini``
IRL: Steini
Irc; Tianamen