Hæ, ég hef verið að spila svokallað Chicken mod sem virkar er þannig mod að maður velur sér race Undead/Orc/Human/Nightelves sér og hver race er með hæfileika, þ.e.a.s í hvert skipti sem hann drepur andstæðing þá fær hann exp. Þetta skiptist í Level, t.d á fyrsta leveli þar maður að ná 100 exp, og þá fær maður að velja einn hæfileika, sem maður getur valið aftur, þangað til að hann verður fullkominn. Ástæðan fyrir því að ég sendi kork á Huga er vegna þess að einsog sumir hafa tekið eftir hafa Geimdóm menn sett upp svona server, ( server2.gamedome.is ) enn það eru nokkrir gallar við þann server, ekki nóg með það að ég var að enda við að spila á honum, maður fer uppí 400 í ping, og það sem mér fannst fáránlegt, þegar ég var að fylgjast með dauður, þá er mér kickað úr console uppúr þurru og gefinn enginn ástæða.

Þessvegna skora ég á Fortress / Símnet / Margmidlun eða einhvern Admin að setja upp þetta mod á server í sinni umsjón. Þetta mod er hreint og beint tær snilld, og serverinn myndi allveg örugglega vera fullur nánast 24/7.

Takk fyrir mig.

Kv.
trausti