Ég fór á server áðan.
Þar voru 2 að spila, við skulum kalla þau Strákur og Stelpa.
ég kem inn í hægindum mínum og hlakkar í mér að fara að leika mér að drepa einhvern.

En um leið og ég kem inn biðja þau mig um að fara.
ég neita í fyrstu að fara, þetta er nú einu sinni PUBLIC server.
En allavega, þá byrjar strákur allt í einu að kalla mig n00b.
Ég tek þetta frekar til mín, enda mjög særandi, segir að ég kunni ekki að spila CS og svoleiðis.
Hann segir til dæmis: “Veistu hver ég er?” ég vissi ekki hver þetta var (ekki neitt stórt nafn) og hann var alveg handviss um það að ég væri n00b af því að ég vissi ekki hver hann var.

Allavega, þið sem viljið taka 1 on 1, startið ykkar eigin serverum og spilið þar, það laggar lítið sem ekkert.

P.s. ég hef Spilað Half-Life síðan ‘98 og CS eitthvað af viti síðan ’00 (með nokkrum pásum reyndar), þannig að ég vill ekki vera kallaður n00b.

Kv.
Sindri S.