Málið er þannig með vexti að ég er í vandræðum. Þegar ég er á public, þá virkar allt fínt, þ.e.a.s. allt smooth og ekkert lagg. En þegar ég ætla að skrimma þá lendi ég í þessu þvílíka veseni með músina mína. Það er allt í lagi, þegar ég hreyfi bara músina þegar karlinn er kjurr, en um leið og hann fer að hreyfa sig, þá virðist músin eða tölvan ekki svara eins fljótt og á public. Þannig það er ómögulegt að vera að skrimma þannig. Please einhver sem getur hjálpað mér varðandi þetta. Endilega þeir sem vita hvað er að hjá mér, viljið þið vinsamlegast gefa mér lausn á þessu vandamáli. Þetta er mjög pirrandi.