Já ég verð að segja það að einhvern veginn er þessi mynd af Traitor farinn að verða fastur heimilisgestur hjá mér eða kannski jafnvel húsgagn. Hingað til hefur mér verið meinilla við svikapilt þennan, fyrir þó ekki verri verknað en að rasskella mig á skjálfta einum, þó alveg óvart var svarið áður en ég reif úr honum jaxlana í reykingarporti breiðablikshússssins……

Jafnframt færa þessir ljósu lokkar honum ákveðinn kvenlegan þokka sem seint verður kveðinn niður af dusilmönnum líkt og vinir hans og fjölskylda hafa sett sig í flokk með, með því að gagnrýna fegurð hans. Ég hef því ákveðið eftir þessi keimlíku kynni hans Traitors og huganotenda að stofna Húmanistaflokk Svikara honum til heiðurs. Flokkur sem einsetur sér að lesa ljóð og hrækja á hina fjarskafögru óvini hans.

Þeir sem vilja leggja mér lið og þeirri stjörnu er horfir inn til okkar allra er vér opnum vafrarann skrái nafn sitt hér og geri sig að official “Traitor” stuðningsmanna.

Næsta ættarmót Svikarans munu eiga sér stað í neðri stein í myllusveit er oft er nefnd svikamylla af sveitungum sínum. Allir stuðningsmenn eru velkomnir þangað þriðjudaginn 11 apríl klukkan kortér í fjögur.

Blóm og kransar afþakkaðir.

[GGRN]TuDDi****
<img src="