Ég ætla að fjalla um sjúkdóm ( ekki alveg en samt). Þetta er svoldið sem ég hef tekið eftir hjá vini mínum “noname” en svo virðist sem að tölvunördar eigi á hættu að fá þennan sjúkdóm frekar heldur en annað fólk og lýsir sjúkdómurinn sér þannig að sjúklingurinn verðu háðari og háðari tölvunni þangað til hann fer að detta inn í tölvuna til skammtíma, þá er kerfið byrjað svo fer sjúklingurinn að spila í tölvunni daglega og alltaf eftir skóla, þegar hann er að spila á hann það til að missa sig út úr heiminum og inn í tölvuna og þá er ekkert hægt að hafa samskipti við þá og þeir haldast inni í tölvunni alveg þangað til roundið er búið og þá hanga þeir á Ircinu langtímum saman. Svo eftir einhver tíma fara þeir að verða dofnari og dofnari þangað til þeir eru orðnir bara allt of dofnir ( eins og vinur minn “ noname ). Viðvötun til allra tölvunörda ” ekki verða nörd af verri tegund". Það er ekkert að því að vera tölvunörd en mikið að því að vera dofinn nörd.