Jæja, nú þegar ég er búinn að keyra minn gagnagrunn í nokkrar vikur ætla ég að deila honum með íslenskum CS spilurum.

http://snoggur.isnet.is/cheaters.php

Sjálfkeyrandi scriptur og MySQL gagnagrunnur skrá alla sem nást fyrir svindl á Fortress.is CS þjónunum. Eina svindlvörnin sem keyrir er VAC.

Og til að útskýra aðeins fyrir öllum í eitt skipti fyrir öll um hvað þessi svindlvörn gerir og hver framtíð hennar er ætla ég aðeins að tala um það.

VAC er svindlvörn kominn frá Valve mönnum ætluð til þess að fá samhæfða svindlvörn í alla Half-Life þjóna. Munurinn á þessari svindlvörn og öðrum sem komið hafa á undan er sá að fólk keyrir þessa svindlvörn að staðaldri í stað hinna sem fer eftir hentugsemi serveradmin. En öðruvísi svindlvarnir hafa verið til og er ég þá að tala um gamla Punkbuster og svo Cheating-Death en þær nota bæði serverhluta og svo client á vél spilarans. Eftir því sem ég hef lesið er þetta einmitt framtíðin í VAC og eru það meðal annars vandræðin sem Valve er að kljást við með útgáfu Steam 2.0 og nýjasta patch. Hugmynd þeirra er að vera ekki bara með innbyggða svindlvörn í server heldur client líka, frábært mál það að mínu mati.

En hversu mikið er öryggi VAC? Að minni reynslu og annara admina sem keyra CS leikjaþjóna hefur VAC verið stöðugt síðan í byrjun desember og er alveg hætt að sparka fólki sem ekki hefur svindl. Hins vegar eru svindl til sem VAC sér ekki en þetta leysa Valve menn með því að uppfæra svindlvörnina “Silent”. Þetta þýðir að ef þú ert með svindl í dag sem VAC finnur ekki þá er góður möguleiki að VAC finnur það á morgun. Valve uppfæra VAC svo til vikulega og alltaf eru nýjar leiðir til að finna svindl að bætast við. Í dag er þetta opið stríð við þá sem skrifa svindlin og ef við miðum við mannafla og áhuga eru svindlararnir með yfirhöndina. En lítilmanginn gefst ekki upp og ég verð að virða Valve fyrir stanslaust support við þennan aldraða leik sem núna hefur gengið í kringum fjögur ár.

En allavega, vonandi hefur þetta skýrt eitthvað út fyrir einhverjum. Það er óþolandi að vera kallaður svindlari þegar maður er ekki að svindla og einnig að horfa uppá slíkt gerast. Leyfið VAC að vinna sitt verk og hættum að rífast.