Vegna væls í honum hemma mínum ( Object ) þá ákvað ég að laga greinina hans með fullri virðingu fyrir þér ástinn mín.

Hello , ég er einfaldlega að fara að kynna fyrir ykkur sem vita ekki hvað counter strike er.

Counter strike er tölvuleikur sem að er með svona allskonar möppum ( borðum ) og þessi möpp eru skýrð annaðhvort as_eitthvað cs_eitthvað eða de_eitthvað en í gamla daga voru til fleiri gerðir á möppum en ég bara man þær ekki alveg..en allaveganna byrjum á því að tala um leikinn.

þetta er skotleikur og í hverju mappi eru viss verkefni tildæmis í as_ möppunum þá er verkefni Counter Terroristana að fylgja VIP á vissa staði og verkefni terroristanna er að drepa VIP kallinn þetta er svona tilgangurinn með as möppum og nátturlega gamann að drepa andstæðingana líka en megin tilgangurinn er samt að bjarga gíslum.

Aftur á móti þegar að við erum kominn yfir í cs_ möpp þá erum við komnir útí það að verkefni counter terroristana er að fara á vissan stað sem er oftast byrjunarstaðurinn hjá terroristunum og ná gíslum sem að eru 4, á meðan að terroristarnir reyna að halda út í einhverjar 3 mínútur og halda gíslunum svo að þeir vinni roundið en svo ef að terroristarnir deyja allir þá er counter terrorist búið að sigra roundið og sama með ef terroristarnir drepa counter terroristana þá sigra terroristarnir en svo ef að það kemur afþví að counter terroristarnir nái þessum gíslum ( með að labba uppað gíslunum og ýta á E )þá elta þeir þeir counter terroristana og counter terrorastarnir hlaupa með þá alla 4 á byrjunarstað þeirra og þá fá þeir 1000 $ fyrir hvert gísl og vinna líka roundið.

En svo er líka de_ möpp sem að eru oftar en ekki vinsælli en as_ og cs_ möppinn og tilgangurinn þar er sá að counter terrorastarnir eru að vernda svona viss svæði 2 svæði sem merkt eru A og B og ástæðan fyrir því er sú að Terrorastarnir eru með illindi í huga,þeir eru með svona bombu ( c4 ) sem þeir hyggjast ætla að planta á annaðhvort A eða B og ef þeim tekst það þá hafa counter terrorastarnir 35 sekúndur til þess að fara og finna bombuna og aftengja hana.
Ef að counter terrorastarnir kaupa sér defusal kit þá verða þeir sneggri að defusa bombuna en ef ekki þá verða þeir í soldið langan tíma að defusa hana..en svo ef það tekst ekki hjá þeim að defusa bombuna þá gerist það að bombann springur og það sem springur líka er allt í kringum bombuna sem að er oftast bara einhverjir trékassar og ekkert merkilegra en það en það er greinilega mjög merkilegt í augum counter terroristana fyrst þeir eru viljugir til þess að fórna lífi sínu fyrir þessa kassa.En svona er þetta bara de_möpp eru nú samt lang vinsælust og þetta er s.s tilgangurinn með þessum de_ möppum mér finnst persónulega mjög gamann að spila þennan leik og þá sérstaklega de_ möppinn en það finnst flestum sem að spila þennan leik.

En núna vitiðið svona nokkurnveginn hvernig counter strike er ég var ekki tilbúinn í að lesa upp allar byssurnar en ég skal bara svona segja ykkur í flýti hvaða byssur eru mest notaðar og eru svona vinsælastar í þessum leik…þær eru TMP , MAC 10 , Machine Gun og shotgun.Takk fyrir mig ef þið hafið einhverjar spurningar um þennan texta um counter strike endilega svariðið þessu með spurningu.

[]UN[]Object


————————————————————-

Ég er ekki stiga hóra þetta er vinur minn mér er svo INNILEGA sama hvað ég er með mörg stig hér, það var fólk að segja það nennti ekki að lesa þetta utaf stafa kássu en vesskú, en þetta er snilld :D

kv. Retro

<br><br>If it aint Broken Dont Fixit
If it aint broken dont fixit